Tölurnar
- Lið
- 0
- Skráðir
- 0
- Þátttökugjald
- 5.900 kr.
- Dagar í mót
- 0
Mótið
Árgangarnir mætast á vellinum.
Árgangamótið er árlegur viðburður hjá Keflavík — sumir spila enn á hverjum degi, aðrir draga takkaskóna fram einu sinni á ári. Spilað er í karla- og kvennaflokki og hver árgangur stillir upp sínu liði.
- Dagsetning
- 7. nóvember 2026 – 7. nóvember 2026
- Staðsetning
- Reykjaneshöllinn
- Fyrirkomulag
- Einn dagur, fullt af leikjum, alvöru keppni!
- Þátttökugjald
- 5.900 kr. á mann
- Skráningarfrestur
- 1. nóvember 2026
- Netfang
- [email protected]
Spurt og svarað
Allt sem þú þarf að vita áður en þú mætir.
Af hverju þarf rafræn skilríki?+
Til að tryggja að hver og einn skrái sig sjálfur og lendi í réttum árgangi. Fæðingarárið kemur beint úr kennitölunni, svo það þarf ekki að slá neitt inn — og enginn getur skráð einhvern annan.
Ég er fæddur 1986 en vil spila með 1987. Er það hægt?+
Stutta svarið er Nei. Árgangur 1987 er samsett af sigurvegurum, 1986 eru það yfirleitt ekki. En ef þú endilega vilt spila með öðrum árgöngum þá er það hægt og fyrir alla aðra flokka.
Hvað er innifalið og hvað kostar aukalega?+
Þátttökugjaldið nær yfir leikina sjálfa. Lokahóf & kvöldskemmtun eru valfrjáls og bætast við í skráningunni — eða síðar undir „Mín skráning“.
Hvað ef liðið mitt er fullt?+
Þú getur samt skráð þig. Hámarkið er viðmið, ekki útilokun — mótshaldarar raða leikjum eftir því hversu margir mæta.
Get ég breytt skráningunni minni?+
Já. Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum og opnaðu „Mín skráning“. Þar má uppfæra upplýsingar, skipta um lið eða afskrá sig.

